ÁRSSKÝRSLA STJÖRNUNNAR 2024

AÐALFUNDUR UMF STJÖRNUNNAR 8. MAÍ 2025

STARFSÁR 2024

ÁVARP FORMANNS

SKÝRSLA AÐALSTJÓRNAR

Á starfsárinu 2024 tóku ríflega 5.000 virkir iðkendur og yfir 400 þjálfarar og aðrir starfsmenn þátt í starfsemi félagsins, að ógleymdum þeim mikla fjölda sjálfboðaliða sem situr í stjórnum deilda, ráðum og nefndum, eða kemur að starfinu á annan hátt. Hjá félaginu eru sem fyrr starfandi sjö deildir: fimleika-, handknattleiks-, knattspyrnu-, körfuknattleiks-, lyftinga-, sund- og almenningsíþróttadeild.  Lausafjárstaða félagsins í árslok 2024 er sterk, og því má þakka miklu aðhaldi í rekstri síðustu ár. Mjög mismunandi er á milli deilda hvernig reksturinn kemur út. Ekki verður komist hjá því að halda áfram sama aðhaldi.

Stjarnan náði góðum árangri á ýmsum vígstöðvum á árinu. Kvennalið félagsins í hópfimleikum varð Íslands- og bikarmeistarar á árinu, kvennalið félagsins í körfuknattleik komst í 4 liða úrslit í Subway deild kvenna og beið þar lægri hlut gegn Keflavík. Karlalið félagsins í körfubolta fór í undanúrslit í bikar. Meistaraflokkur karla í knattspyrnu tók þátt í Evrópukeppni á árinu. Handbolti karla tók þátt í undanúrslitum í bikar og handbolti kvenna komst alla leið í úrslit bikarsins en tapaði þar.  Þá eru ótaldir allir þeir fjölmörgu titlar sem yngri flokkar félagsins söfnuðu að sér á árinu og ljóst að framtíðin í Garðabænum er björt.  Við í Stjörnunni erum virkilega stolt af okkar frábæra íþróttafólki og er ómetanlegt að hafa jafn sterkar og jákvæðar fyrirmyndir innan okkar raða. Góð ásókn var í sumarnámskeið félagsins á síðastliðnu sumri og var einstaklega vel tekið í ný námskeið sem boðið var upp á fyrir eldri iðkendur.

Stjarnan er ákaflega stolt af því mikilvæga hlutverki sem félagið gegnir í samfélaginu okkar í Garðabæ. Félagið er meðal stærstu þjónustuaðila í bæjarfélaginu og er hlutverk þess þríþætt: • Barna- og unglingastarf • Afreksstarf • Almenningsíþróttir fyrir fullorðna.  Í barna- og unglingastarfinu er hugsjónin fyrst og fremst að skila út í samfélagið sterkum einstaklingum sem læra í gegnum íþróttirnar að takast á við gleði og sorgir, sigra og töp, meðbyr og mótlæti. Ekki má heldur gleyma því mikla forvarnargildi sem þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi hefur. Slík þátttaka, ásamt samvistum við forráðamenn og fjölskyldu, eru tveir stórir þættir sem hafa áhrif til góðs þegar litið er til áhættuhegðunar barna og ungmenna. Afar mikilvægt er að halda ótrauð áfram á braut forvarna og hlúa enn betur að því starfi sem unnið er á þessu sviði.  Sérstaklega þarf að koma í veg fyrir brottfall á unglingsaldri og hlýtur að koma til skoðunar að reka á þeim aldri bæði afrekslínu og almenningslínu mögulega með færri æfingum í viku hverri og ekki með sömu áherslu á keppni.   

Í afreksstarfi er Stjarnan í fremstu röð. Auk þeirrar sigurhefðar, skemmtanagildis, samstöðu og félagslegrar samveru sem afreksstarfið elur af sér er eitt af stóru hlutverkum afreksstarfsins að skapa fyrirmyndir fyrir yngri iðkendur. Eins og áður hefur komið fram er ómetanlegt að eiga sterkar fyrirmyndir og óhætt er að fullyrða að í Stjörnunni eigum við fjöldann allan af slíkum sem við öll, börn og fullorðnir, getum stolt litið upp til. Samstaðan sem myndast í kringum afreksfólkið okkar á stóran þátt í að þjappa okkur saman og við finnum fyrir því að tilheyra stærri heild.

Skíni Stjarnan!

Fyrir hönd aðalstjórnar Stjörnunnar,

Sigurður Guðmundsson, formaður

STARFSEMI UMF STJÖRNUNNAR

Fjöldi virkra iðkenda í barna- og unglingastarfi félagsins starfsárið 2024 til vors 2025 er samtals 4.107. Líkt og kom fram í skýrslu aðalstjórnar hér að framan, þessir 4.107 iðkendur iðka 6.503 iðkanir.

Iðkendafjöldi hefur haldist stöðugur í flestum deildum félagsins á milli ára og er það vel. Knattspyrnudeild félagsins er stærsta deild félagsins en fimleikadeildin fylgir þar fast á eftir. Hér fyrir neðan/til hliðar er mynd sem sýnir hlutfallslega skiptingu iðkenda á milli deilda félagsins.

FJÖLDI IÐKENDA

Sumarstarfsemi félagsins tókst einstaklega vel á síðasta ári þar sem góður kraftur var settur í starfið en félagið býður upp á sérstök námskeið yfir sumarið sem ekki falla undir hefðbundnar æfingar flokka félagsins. Námskeiðin hafa verið vel sótt af bæði iðkendum Stjörnunnar og öðrum krökkum sveitarfélagsins og fjölbreytileikinn alltaf að verða meiri fyrir alla hópa en á sumrin gefst oft tími til að bjóða upp á sérhæfðari námskeið sem ekki komast að yfir vetrarmánuðina.

Alls tóku um 1.887 krakkar þátt í þeim námskeiðum sem voru í boði sem er mikil aukning á milli ára. Hér fyrir neðan/til hliðar er hægt að skoða skiptingu þeirra eftir deildum frekar.

SUMARNÁMSKEIÐ

ÞJÁLFARI ÁRSINS 2024

HINRIK PÁLSSON

Hinrik er þjálfari meistaraflokks Stjörnunnar hjá lyftingadeild og hefur lagt ómetanlega vinnu af mörkum til að byggja upp sterkan og samheldinn hóp. Með skýrri sýn og einstakri færni í að aðlaga þjálfun að þörfum hvers og eins hefur hann náð að efla bæði einstaklinga og liðið í heild.

Árangur Hinriks hefur skilað sér á alþjóðlegum vettvangi en Stjarnan átti fjóra af níu íslenskum keppendum á Evrópumeistaramótinu í mars og Hinrik þjálfar þau öll. Þetta endurspeglar mikilvægi hans í þjálfun á fremsta kraftlyftingafólki landsins.

Keppnisárið endaði á Íslandsmeistaramótinu sem haldið var á heimavelli Stjörnunnar. Þar unnu bæði karla- og kvennalið félagsins stigabikarinn sem endurspeglar þann uppgang og velgengni sem hefur átt sér stað undir leiðsögn Hinriks. Þessi árangur er sönnun á áhrifaríkri og árangursmiðaðri þjálfun innan félagsins.

LÖG UMF STJÖRNUNNAR

1. gr.

Félagið heitir Ungmennafélagið Stjarnan, skammstafað U.M.F. Stjarnan.

2. gr.

Starfssvæði U.M.F. Stjörnunnar er Garðabær.

3. gr.

Tilgangur félagsins er að efla líkams og heilsurækt í formi keppnis- og almenningsíþrótta hjá öllum aldurshópum í Garðabæ. Ennfremur að efla samkennd bæjarbúa með virkri þátttöku í íþrótta- og félagsstarfi.

4. gr.

Félagið er myndað af einstaklingum í íþróttadeildum, sem hafa sameiginlega aðalstjórn. Aðalstjórn skipar deildarstjórnir og fer með æðsta vald félagsins milli aðalfunda.

5. gr.

Félagi getur hver sá orðið, sem skráður er í félagið og greiðir félags- eða æfingagjald til þess.

6. gr.

Úrsögn úr félaginu skal tilkynnt aðalstjórn.

7. gr.

Semja skal ársreikning fyrir aðalstjórn U.M.F. Stjörnunnar og einstakar deildir félagsins. Hver deild skal annars vegar gera upp rekstur barna- og unglingastarfs og hins vegar rekstur keppnisíþrótta fyrir 18 ára og eldri. Jafnframt skal semja samstæðureikning fyrir UMF. Stjörnuna. Ársreikningurinn skal gerður samkvæmt lögum, reglum og góðri reikningsskilavenju. Hann skal sýna yfirlit um rekstur og framkvæmdir á reikningsárinu og efnahagsreikning í lok reikningsárs ásamt skýringum. Í ársreikningi skal sýna fjárhagsáætlun reikningsársins til samanburðar og í honum skal koma fram yfirlit um fjárhagslegar skuldbindingar félagsins. Ráðinn skal löggiltur endurskoðandi til þess að yfirfara og árita ársreikninginn í samræmi við lög og reglur og góðar skoðunarvenjur. Með endurskoðun sinni skal hann komast að rökstuddri niðurstöðu um áreiðanleika ársreiknings og ganga úr skugga um að fylgt hafi verð ákvæðum laga, reglna og samþykkta um meðferð fjármuna. Reikningsár félagsins er frá 1. janúar til 31. desember ár hvert.

8. gr.

Aðalstjórn U.M.F. Stjörnunnar fer með stjórn félagsins samkvæmt ákvæðum samþykkta þessara. Aðalstjórn skal skipuð 5 mönnum, formanni, varaformanni, ritara, og tveimur meðstjórnanda, ásamt 2 varamönnum. Aðalstjórn skal kosin á aðalfundi félagsins og skal formaður kosinn sérstaklega.

9. gr.

Aðalstjórn ber að samræma starfsemi félagsins, vinna að eflingu þess og gæta hagsmuna þess í hvívetna. Aðalstjórn er málsvari félagsins út á við og skýrir sjónarmið þess á þeim vettvangi. Aðalstjórn ákveður félagsgjöld í upphafi starfstímabils og heldur skrá yfir alla félagsmenn. Aðalstjórn skal skipa trúnaðarmenn félagsins og þær nefndir sem hún telur nauðsynlegar hverju sinni. Aðalstjórn er heimilt að víkja mönnum úr félaginu eða setja þá í keppnisbann álíti hún framkomu þeirra vítaverða og brjóta í bága við anda íþróttahreyfingarinnar. Sjóði félagsins skal ávaxta í viðurkenndum innlánsstofnunum. Aðalstjórn skal halda stjórnarfundi minnst einu sinni í mánuði og skal halda um þá sérstaka gerðarbók. Enga fullnaðarákvörðun getur aðalstjórn tekið nema með samþykki meirihluta stjórnarmanna. Aðalstjórn hefur umráðarétt yfir eignum félagsins og ræður starfsemi þess.

10. gr.

Aðalstjórn U.M.F. Stjörnunnar ræður framkvæmdastjóra og aðra starfsmenn félagsins til þess að annast framkvæmd ákvarðana aðalstjórnar, framkvæmd ákvarðana stjórna einstakra deilda og verkefni félagsins. Framkvæmdastjóri félagsins skal sitja fundi aðalstjórnar, og hefur hann þar málfrelsi og tillögurétt, en eigi atkvæðisrétt. Framkvæmdastjóri undirbýr fundi aðalstjórnar og hefur á hendi framkvæmd þeirra ákvarðana, sem aðalstjórn tekur. Framkvæmdastjóri er prókúruhafi U.M.F. Stjörnunnar. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni félagsins prókúru að fengnu samþykki aðalstjórnar. Prókúruhafar félagsins skulu vera fjár sín ráðandi. Framkvæmdastjóri undirritar skjöl varðandi kaup og sölu eigna félagsins, lántökur og ábyrgðir, svo og önnur skjöl og samninga, sem fela í sér skuldbindingar eða ráðstafanir, sem samþykki

aðalstjórnar eða stjórna einstakra deilda félagsins þarf til.

11. gr.

Aðalstjórn skal ekki sjaldnar en fjórum sinnum á ári halda fundi með formönnum deilda eða staðgenglum þeirra. Slíkir fundir kallast félagsráðsfundir og þar skulu helstu ákvarðanir aðalstjórnar kynntar og stefnumarkandi ákvarðanir ræddar.

TILLAGA AÐ BREYTINGU LAGA

8. gr. 

Í 8. gr laganna (sem áður var 9. gr) er lagt til að 8. og 9. málsliðir 1. mgr. orðist svo: 

„Aðalstjórn skal halda stjórnarfundi að jafnaði 10 sinnum á ári eða oftar ef þurfa þykir. Halda skal um þá  sérstaka gerðabók en heimilt er að færa fundargerð í tölvu og undirrita með rafrænni undirritun.    Fundargerðir skulu varðveittar í gagnagrunni/málaskrá félagsins.“ 

Lagt er til að í greinina komi ný mgr. sem verður 2. mgr. og orðist svo. 

„Heimilt er að halda fundi aðalstjórnar með fjarfundabúnaði og jafnframt skal einstaka stjórnarmönnum heimilt að taka þátt í fundi með rafrænum hætti.“ 

Lagt er til að við 5. mgr. greinarinnar komi eftirfarandi viðbót: 

„Tillaga að samþykkt sem lögð er fram á fundi aðalstjórnar þarf að hafa legið fyrir í fundarboði og verið kynnt stjórnarmönnum eigi hún að koma til afgreiðslu Þó skal heimilt að taka tillögu til afgreiðslu með samþykki allra stjórnarmanna.“ 

9. gr.  

Lagt er til að 3. og 4. mgr. 9.  gr. (sem áður var 10. gr.) orðist svo: 

„Framkvæmdastjóri skal annast undirbúning funda  aðalstjórnar og sér um að ákvarðanir þær sem aðalstjórn tekur, komist til framkvæmda.“ 

„Framkvæmdastjóri er prókúruhafi U.M.F. Stjörnunnar. Honum er heimilt að veita öðrum starfsmanni félagsins prókúru að fengnu samþykki aðalstjórnar. Prókúruhafar félagsins skulu vera fjár síns ráðandi og hafa óflekkað mannorð.“ 

10. gr. 

Lagt er til að 1. málsliður 10. gr. (sem áður var 11. gr.) orðist svo: 

„Aðalstjórn skal halda fundi með formönnum deilda eða staðgenglum þeirra eins oft og þurfa þykir, en eigi sjaldnar en tvisvar sinnum á ári.“ 

11. gr. 

Lagt er til að 2., 3. og 4. mgr. 11 gr. (sem áður var 13. gr.) orðist svo: 

„Stjórnir deilda skulu halda að jafnaði fjóra formlega fundi á starfstímabili og færa fundargerðir í sérstaka gerðabók. Fundina skulu sitja stjórnarmenn og þá skal einnig boða framkvæmdastjóra félagsins og rekstrarstjóra viðkomandi deildar. Á dagskrá skal m.a. taka til umræðu stefnumarkandi ákvarðanir, fjárhagsstöðu og stöðu framkvæmda- og starfsáætlunar. Halda skal um þá  sérstaka gerðabók en heimilt er að færa fundargerð í tölvu og undirrita með rafrænni undirritun. Fundargerðir skulu varðveittar í gagnagrunni/málaskrá félagsins..“ 

„Heimilt er að halda fundi deildastjórna með fjarfundabúnaði og jafnframt skal einstaka stjórnarmönnum heimilt að taka þátt í fundi með rafrænum hætti.“ 

„Atkvæði formanns ræður úrslitum falli atkvæði jöfn innan stjórnar.“ 

12. gr.  

Lagt er til að 2. málsl. 1. mgr. 12. gr. (sem áður var 14. gr.) orðist svo: 

„Til aðalfundar skal boðað með minnst tveggja vikna fyrirvara með almennri tilkynningu í tölvupósti til félagsmanna, með  auglýsingu á vef félagsins og með almennri auglýsingu í bæjarblaði sé þess kostur“. 

Lagt er til að í 5. málsl. 1. mgr. 12. gr. komi „16 ár“ í stað „18 ár“. 

Lagt er til að 7. tl. 2. mgr. 12. gr. orðist svo: 

„7) Kjör aðalstjórnar. 

· Kosinn formaður til tveggja ára.  (Kosning fer fram annað hvert ár.) 

· Kosnir tveir af fjórum stjórnarmönnum  til tveggja ára. 

· Kosinn einn af tveimur  varastjórnarmönnum til tveggja ára. 

· Kosinn löggiltur endurskoðandi eða endurskoðunarfélag „ 

13. gr. 

Lagt er til að 1. málsl. 2. mgr. 14. gr. (sem áður var 16. gr) orðist svo: 

„Almennur félagsfundur telst löglegur ef til hans er boðað eins og fyrir er mælt um boðun aðalfundar samkvæmt 12. gr.“ 

Tillögur að breytingum á lögum Ungmennafélagsins Stjörnunnar  

1 gr.  

Lagt er til að í 1. gr. laganna komi nýr málsliður sem var áður í 2. gr.  

„Starfssvæði U.M.F. Stjörnunnar er Garðabær:“ 

2. gr. 

Lagt er til að í 2. gr. laganna komi nýr texti sem áður var í 17. og 18. gr. laganna. 

„Meginlitir búninga félagsins skulu vera blár og hvítur. Aðalstjórn er heimilt að leyfa undantekningar, eins og að aukalitum sé bætt við. Aðalstjórn skal setja reglugerð um gerð búninga, sem hafi að geyma leiðbeinandi reglur um hvaða undantekningar verði samþykktar. 

Aðalstjórn skal setja reglugerð um notkun og meðferð á félagsmerki U.M.F.  Stjörnunnar. Ávallt skal gengið út frá því að merkið sé ess (s) á stjörnu.“ 

3. gr. 

Lagt er til að í 3. gr. laganna verði bætt við „og útbreiða“.  Greinin orðist þá svo: 

„Tilgangur félagsins er að efla og útbreiða líkams- og heilsurækt í formi keppnis- og almenningsíþrótta hjá öllum aldurshópum í Garðabæ. Enn fremur að efla samkennd bæjarbúa með virkri þátttöku í íþrótta- og félagsstarfi.“ 

4. gr.  

Lagt er til að komi ný grein er verði 4. gr. og orðist svo: 

„Félagið er aðili að UMSK, UMFÍ, ÍSÍ og sérsamböndum þess, eftir því sem við á hverju sinni.“ 

5. gr. 

Lagt er til að sameina greinar 4, 5 og 6 í eina grein sem verður 5. gr. og orðist svo: 

„Félagið er myndað af einstaklingum í íþróttadeildum, sem hafa sameiginlega aðalstjórn. 

Aðalstjórn skipar deildarstjórnir og fer með æðsta vald félagsins milli aðalfunda. Félagi getur hver sá orðið, sem skráður er í félagið og greiðir félags- eða æfingagjald til þess. Úrsögn úr félaginu skal tilkynnt aðalstjórn.“ 

6. gr. 

Lagt er til að í 6. gr. laganna (sem áður var 7. gr.) verði felldur út eftirfarandi texti. 

„sýna fjárhagsáætlun reikningsársins til samanburðar og í honum skal“ 

Lagt er til að eftirfarandi texti bætist við í 4. mgr. 

„eða endurskoðendafélag“ 

7. gr. 

Í 7. gr. laganna (sem áður var 8. gr) er lagt til að fellt verði út að aðalstjórn skuli skipuð ritara. Jafnframt er lagt til bætt verði við greinina almennum hæfisskilyrðum til stjórnarmanna og ákvæði um skipan fjárhagsráðs 

Lagt er til að greinin orðist svo: 

„Aðalstjórn U.M.F. Stjörnunnar fer með stjórn félagsins samkvæmt ákvæðum laga þessara. 

Aðalstjórn skal skipuð fimm mönnum, formanni, varaformanni, og þremur meðstjórnendum, ásamt tveimur varamönnum. Aðalstjórn skal kosin á aðalfundi félagsins og skal formaður kosinn sérstaklega.  

Á fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar kýs hún sér varaformann og skipar fjárhagsráð sem í eiga sæti formaður, varaformaður og einn fulltrúi kosinn af stjórn.  

Stjórnarmenn í aðalstjórn skulu uppfylla eftirfarandi skilyrði. 

a.​Að vera fjár síns ráðandi og hafa óflekkað mannorð. 

b.​Að hafa fjölhæfa þekkingu, menntun og reynslu, sem nauðsyn þykir til að taka sæti í stjórn U.M.F Stjörnunnar. 

c.​Að hafa ávallt hafa hagsmuni félagsins að leiðarljósi í öllum sínum störfum.“ 

ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS 2024

ÁSTA KRISTINSDÓTTIR

Ásta hefur verið í lykilhlutverki í meistaraflokki í Stjörnunnar í hópfimleikum sem varð Bikar- og Íslandsmeistari á árinu 2024. Hún keppir þar með hæsta erfiðleika í stökkum sem sést á íslenskum mótum í öllum umferðum sem hún framkvæmir. Ásta vann einnig Evrópumeistaratitil með landsliði kvenna fullorðna núna í október 2024. Var þetta annar Evrópumeistaratitillinn hennar í fullorðins flokki. Ásta var þar valin í lið besta fimleikafólks mótsins (All Star) fyrir frammistöðu sína á dýnu. Þýðir það að hún framkvæmdi umferðir með hæsta erfiðleikann allra keppanda á öllum mótinu og með bestu framkvæmdina. Ásta keppti með þrefalt heljar stökk á íslenska keppnistímabilinu sem er mjög sjaldgæf sjón hjá konum í fimleikum ásamt því að þá keppti hún fyrst kvenna á Íslandi með heil kraftstökk tvöfalt heljar með hálfum á Evrópumótinu sem er einnig mjög sjaldgæf sjón hjá konum í fimleikum.

Við erum sérstaklega stolt af Ástu og öllum þeim árangri sem hún hefur náð. Hún leggur sig alla fram og gefur ekkert eftir. Hún fer áfram af miklu eldmóð og eru fimleikar framar öllu.   

SKÝRSLA ALMENNINGSDEILDAR

LÍKAMSRÆKT BIRNU OG ÓLA

STARFSEMIN

Líkamsrækt B&Ó hefur starfað í 36 ár á þessu ári, 2025 eða frá 1989 undir merkjum Almenningsdeildar Stjörnunnar. Því var fagnað vel 26/4-28/4 að Laugarbakka í Miðfirði á síðasta ári.
Frá byrjun hefur verið starfræktir sér kvenna- og karlatímar og hefur fjöldinn verið ansi svipaður síðustu 35 árin ca. 60 konur og 60 karlar með fastan 50 – 55 manna kjarna í hvorum hópi. S.l. ár hefur fjöldinn verið dálítið rokkandi, nýir þátttakendur komið inn og aðrir hætt.  Þó hefur fasti kjarninn haldið sér að mestu eins og áður.

Tímarnir í Ásgarði voru með sama sniði og undanfarin ár eða 50 mín. tvisvar í viku hjá körlunum, þ.e. kl. 17:50 og annar hópur kl. 18:40 á mánud. og miðvikud. en hjá konunum er  hópur kl. 07:50 á mánud., miðvikud. og föstud. en annar hópur kl. 17:00 á mánud. og miðvikud.  Við segjum alltaf að þessi líkamsrækt er 50 % líkamsrækt og hin 50 % er félagslegt, ekkert breyst!!  Skýrist það að því að félagslegi þátturinn er líka mikið ræktaður, t.d. er ganga á hverjum laugard., þar sem allir koma og taka þátt um Garðabæ, en tvisvar í mán. er farið í lengri skipulagðar göngur með leiðsögn á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni sem jafnvel er farið á kaffihús í lokin eða boðið upp á kakó, kex og kristal.

FÉLAGSSTARFIÐ

Vorönnin hófst 8 jan.-  29 apr.

2. febrúar var Þorrablót árlegt Þorrablót haldið að Garðaholti

35 ára Afmælis hátíð með allt að 100 manns  var haldin á Laugarbakka  27. Apríl. farið í Farið var í skoðunarferð að Þrístöpum þar sem Magnús Ólafsson leiddi okkur í gengum allan sannleikann um síðustu aftökuna á Íslandi.  Eftir á var farið að skoða Þingeyrakirkju og boðið upp á hressingu í safnaðarheimilinu.  Þegar komið var til baka á hótelið var afmælisgjöfum dreift til þátttakenda við mikinn fögnuð (Bakpoki með merki Líkamsræktarinnar og Stjörnumerkinu)  Um kvöldið var hátíðarkvöldverður í fallega skreyttum sal hótelsin og að sjálfsögðu slegið upp góðu balli með Diskótekinu Dísu fram á nótt.

Haustönnin hófst 2 sept. – 18 des.

Konukvöld var haldið í Stjörnuheimilinu við góðar undirtektir í byrjun nóvember, Sr. Jóna Hrönn kom og talaði um  hamingjuna og lífið. Þá var  ómissandi snyrtivörukynning ásamt hlaðborði sem þátttakendur lögðu á borð.

Miðbæjargangan  var farin að venju í lok nóvember þar sem gengið var frá Reykjavík Natura Hótel um miðbæinn og enduðum við á Satt þar sem að boðið var upp á ekta Jólahlaðborð.  Frábær dagur og samvera, allt að 50 manns!  Árið endaði svo með hinni árlegu göngu í Heiðmörkinni og að sjálfsögðu helgistund með Magnúsi B. Björnssyni í Maríuhellum 7.des.

Starfsemin gekk að öllu leyti vel, allir ánægðir að geta stundað líkamsrækt saman. Viljum við þakka þátttakendunum okkar kærlega fyrir okkur og frábæra samveru síðasta ár.

Með kærri líkamsræktar kveðju, Birna og Óli

Stjórn Almenningsíþróttadeildar vill sérstaklega þakka þeim Birnu og Óla kærlega fyrir þeirra framlag til almenningsíþrótta í Garðabæ.  Einnig viljum við þakka iðkendum og öllum sem komið hafa að starfi deildarinnar fyrir þeirra þátt.

F.h. Almenningsíþróttadeildar Stjörnunnar

Ólafur Reimar Gunnarsson, formaður almenningsíþróttadeildar.

HLAUPAHÓPUR

Hlaupahópur Stjörnunnar er hluti af Almenningsíþróttadeild Stjörnunnar. Að meðaltali eru um 70-80 meðlimir í hópnum.  Um 85% meðlima koma úr Garðabæ og aðrir frá nágranna sveitarfélögum.  Meðalaldur hópsins er um 56 ár og kynjahlutfallið 55/45 konur/karlar.   

Mikið og öflugt starf hefur verið unnið innan hópsins. Lykillinn er frábær þjálfari, góð aðstaða og starf fyrir nýliða sem hefur gengið vel. 

Hlaupahópur Stjörnunnar samanstendur af fjölbreyttum hópi hlaupara; allt frá byrjendum sem eru að stíga sín fyrstu skref, yfir í reynda hlaupara með margra ára reynslu að baki. Á árinu 2024 tóku Stjörnuhlauparar virkan þátt í fjölda keppnishlaupa, bæði hér heima og erlendis. 

Einn öflugasti hlaupari og þjálfari landsins Arnar Pétursson er þjálfari  hópsins og sinnir hann öllum getustigum. Fyrir utan æfingar á stígum bæjarins og utanvegahlaup í Heiðmörkinni er boðið upp á sérstakar styrktaræfingar í Miðgarði og gæða æfingar yfir vetrartímann í inniaðstöðu á hlaupabraut í Kaplakrika.  Bætt umgjörð í kringum starfsemina eins og inniaðstaða yfir köldustu mánuðina hefur aukið gæði æfinga og árangur hlaupara. 

Öflugt félagsstarf er einnig hjá Hlaupahópi Stjörnunnar.  Ásamt Hlauparáðinu sem stýrir daglegum málefnum, þá er sérstök Viðburðanefnd sem sér um að skipuleggja viðburði.

Frá 2015 hefur Hlaupahópurinn staðið fyrir Stjörnuhlaupinu.  Stjörnuhlaupið er utanvegahlaup í Heiðmörk og er hlaupið frá  Miðgarði. Boðið var upp á tvær vegalengdir, annars vegar 11 km og hins vegar 22 km.  Ásókn í utanvegahlaup hefur aukist mikið á síðustu árum og mun meira en í almennum götuhlaupum.

Allir eru velkomnir í Hlaupahóp Stjörnunnar, byrjendur jafnt sem lengra komnir. Hlaupahópurinn er með fésbókarsíðuna "Hlaupahópur Stjörnunnar" og þar er að finna allar upplýsingar um starfsemi félagsins.  Æfingar eru 4 sinnum í viku, þar af  3 sinnum undir leiðsögn þjálfara.

Formaður Hlaupahóps Stjörnunnar

SKÝRSLA FIMLEIKADEILDAR

Árangur á árinu í barna- og unglingastarfinu

Árangur í yngri barna starfi fimleikadeildarinnar var mjög góður árið 2024. Iðkendur Stjörnunnar oftast í topp þremur sætunum bæði í áhaldafimleikum og hópfimleikum í flestum aldursflokkum. Hér eru þeir sem unnu titla á árinu:

Áhaldafimleikar:

Sigurrós Ásta Þórisdóttir varð Íslandsmeistari í 1. þrepi

Indía Marý Bjarnadóttir varð Íslandsmeistari í 2. þrepi

Arney Ívarsdóttir varð Íslandsmeistari í 3. Þrepi

Þóranna Sveinsdóttir varð í 3 sæti á slá á Íslandsmótinu í unglingaflokki í frjálsum æfingum.

Stjarnan varð Bikarmeistari í 1. þrepi en liðið skipaði; Alísa, Kolbrún, Eva, Sigurrós og Líney.  Stjarnan varð í 3. sæti á Bikarmóti í frjálsum æfingum sem er besti árangur Stjörnunnar frá upphafi. Í liðinu voru Líney, Kolbrún, Eva, Katla, Sigurrós og Þóranna.

Hópfimleikar:

1. flokkur blandað lið varð Bikarmeistari, Íslandsmeistari og Norðurlandameistari.

Kke urðu Íslandsmeistarar.

Meistaraflokkar

Fjöldi iðkenda í meistaraflokki Stjörnunna fór á vorönninni í lýðháskóla og því voru allir iðkendur meistaraflokks saman á æfingu stóran part úr ári. Keppendur í meistaraflokki eru á aldrinum 17 til 30 ára. Þjálfarar  2024 voru: Una Brá Jónsdóttir, Mikkel Schertz, Kristinn Már Hjaltason, Þorbjörn Bragi Jónsson og Tanja Kristín Leifsdóttir. Meistaraflokkur kvenna urðu Íslandsmeistarar og Bikarmeistarar árið 2024.

Um 56% landsliðsiðkenda sem fór á Evrópumótið í hópfimleikum sem var haldið í október í Baku voru frá Stjörnunni. Kvenna liðið varð Evrópumeistari 2024 og voru þar 9/11 iðkendum hluti af kvennaliðs Stjörnunnar. Ásta og Laufey voru valdar í All Starlið mótsins.

Landslið

Þóranna Sveinsdóttir og Katla María Geirsdóttir voru valdar í unglingalandsliðið í áhaldafimleikum og kepptu á Norðurlandamótinu í Finnlandi.

Rekstur

Reksturinn var í örlitlu tapi árið 2024, helsta skýringin á því er hækkun á launakostnaði og aukunn kostnaður við menntun þjálfara.

Áhöld

Salur fimleikadeildarinnar fékk kærkomna yfirhalningu sumarið 2024. Settur var dúkur á

allt gólfið inn í salnum, ljósum var skipt út og loftræstikerfi hreinsuð. Fimleikadeildin fékk nýtt dansgólf sem og nýjar gryfjudýnur fyrir aftan trampólínin og lendingargryfjuna hjá fiber.

Lokaorð

Deildin vill þakka framkvæmdastjóra og skrifstofu fyrir gott samstarf á árinu. Þjálfarar eiga hrós skilið fyrir gott starf sem hefur sannarlega skilað sér í frábærum árangri á árinu. Starfsfólk Ásgarðs þökkum við einnig fyrir vel unnin störf og gott viðmót. Síðast en alls ekki síst vill stjórn þakka öllum þeim iðkendum, sjálfboðaliðum, foreldrum, styrktaraðilum og öðrum sem hafa unnið ómetanlegt starf fyrir deildina síðastliðin ár

Fyrir hönd stjórnar Fimleikadeildar,

Ingibjörg Jóhanna Vilhjálmsdóttir formaður

Stjórn og starfsmenn Fimleikadeildar 2024

Stjórn

  • Ingibjörg J Vilhjálmsdóttir, formaður

  • Sunna Helgadóttir, ritari

  • Rakel Jóna Guðmundsdóttir

  • Erna Mathiesen

  • Sveinn Þórarinsson

  • Fríða Árnadóttir

  • Harpa Guðrún Hreinsdóttir

  • Heiðdís Dögg Sigurbjörnsdóttir

Rekstrarstjóri

  • Unnur Símonardóttir lét að störfum maí 2024

  • Una Brá Jónsdóttir tók við störfum maí 2024

Þjálfarar í fullu starfi

  • Una Brá Jónasdóttir, yfirþjálfari í hópfimleikum til apríl 2024

  • Andrea Sif Pétursdóttir, þjálfari í hópfimleikum

  • Erla Rut Mathiesen, dansþjálfari í hópfimleikum til júní 2024

  • Helgi Laxdal, þjálfari í hópfimleikum,

  • Mikkel Schertz, þjálfari í hópfimleikum

  • Ingvar Daði Þórisson, þjálfari í hópfimleikum

  • Hildur Ketilsdóttir, þjálfari í áhaldafimleikum

  • Vladimir Zaytsev, þjálfari í áhaldafimleikum

  • Alfredo Guevara, þjálfari í áhaldafimleikum

  • Freyja Sævarsdóttir, þjálfari í áhaldafimleikum til júlí 2024

  • Pablo Araya, þjálfari áhaldafimleikum

  • Rasmus Lee Miller, þjálfari í hópfimleikum frá ágúst 2024

Þjálfarar í tímavinnu:

  • 51 þjálfarar í verktöku

  • 16 þjálfarar í tímavinnu

  • Fimm þjálfarar á meistaraflokki

DEILD ÁRSINS 2024

HANDKNATTLEIKSDEILD

Handknattleiksdeild Stjörnunnar náði eftirtektarverðum árangri á mörgum vígstöðum á árinu 2024.

Í barna- og unglingastarfi deildarinnar náðist að efla starfið mjög sem sýnir sig í töluverðri fjölgun iðkenda deildarinnar á milli ára. Góðir og reynslumiklir þjálfarar á flokkum deildarinnar sem hafa haldið tryggð við félagið undanfarin ár skila sér í samfellu fyrir iðkendur og starfið í heild ásamt meiri fókus á árinu 2024 á heildrænt skipulag í kringum barna- og unglingastarf deildarinnar.

Í afreksstarfi deildarinnar skilaði félagið báðum meistaraflokkum í svokallað Final Four, þ.e. undanúrslit í bikarkeppni HSÍ, og náði meistaraflokkur kvenna alla leið í úrslit. Bæði lið áttu svo ágætu gengi að fagna í deildarkeppnum.

Sá árangur sem stjórn handknattleiksdeildar og meistaraflokksráð beggja liða hafa náð í viðsnúningi á rekstri afreksstarfs handknattleiksdeildar frá sumrinu 2023 er magnaður og eiga þeir sjálfboðaliðar og starfsmenn sem hafa leitt það starf heiður skilið. Einnig hefur stjórn gert vel í að fjölga sjálfboðaliðum og vinnandi höndum í kringum afreksstarfið sem er mikilvægt.

SKÝRSLA HANDKNATTLEIKSDEILDAR

Handknattleiksdeild Stjörnunnar er í góðum vexti og hefur iðkendum fjölgað umtalsvert í deildinni. Í því sambandi hefur gengi meistaraflokkana gríðarleg áhrif, sem og árangur landsliðanna okkar. Það er því gríðarlega mikilvægt að við höldum áfram að vera meðal fremstu liða á Íslandi bæði í meistarflokki kvenna og karla, og halda áfram að byggja upp jákvætt og gott starf.

Núverandi stjórn hefur mótað ákveðna og markvissa stefnu og það er að leggja mikinn kraft í að byggja upp öfluga og góða yngri flokka. Hugsunin er sú að þeir iðkendur koma svo til með að verða okkar fremsta handboltafólk landsins, alast upp í félaginu og fara síðan upp í meistarflokka og vonandi verða hluti af íslenska landsliðinu. Með öðrum orðum má segja að Stjarnan kappkosti við að halda úti öflugasta yngri flokka starfi landsins. Sem stendur höfum við um 30 þjálfara auk aðstoðarþjálfara. Næstu ár eru einnig gríðarlega mikilvæg hvað varðar uppbygginarvinnu félagsins og er stefnt að því að veita iðkenndum meiri aðstoð með styrktarþjálfun, vinnu með andlegu geðheilsuna og fræðslu um holla næringu. Við viljum einnig veita iðkendum okkar á séræfingar og markmannsþjálfun.

Stjarnan setti af stað U-lið í fyrra fyrir karlaliðið sem spilar í 2. deild. Stjórn telur það gríðarlega mikilvægt skref til þess að brúa bilið fyrir iðkenndur sem eru að stíga sín fyrstu skref í meistarflokki. Kvennaliðið í meistaraflokki er frekar ungt. Þannig var ekki unnt að koma á þessu milliskrefi þar sem ekki hefði verið hægt að manna bæði liðin. Við stöndum þó frammi fyrir því að erfitt hefur verið að ná í leikmenn í kvennaliðið og er það töluvert áhyggjuefni ekki bara fyrir Stjörnuna helduru fleiri lið, einungis eru um 330 konur skráðar í handbolta yfir 18 ára aldur á landinu sem er mjög lítið og er þetta mikið áhyggjuefni fyrir kvennahandbolta á Íslandi.

Handknattleiksdeild vill þakka sínum stærstu styrktaraðilum kærlega fyrir þann stuðning sem að þeir hafa veitt okkur til að halda starfinu gangandi Hekla er okkar stærsti styrktaraðili og hefur það samstarf gengið vel. Aðrir styrktaraðilar okkar eru ekki síður mikilvægir og sendum við Bílasölu Reykjavíkur, Emmessís, TM, Ölgerðinni, Bílaleigu Akureyrar, Dráttarbílum, KPMG, Íslandsbanka, Stál og Suða og Þingvangi hugheilar þakkir.

Styrksöfnun síðustu mánuði hefur leitt í ljós að ekki er auðvelt að fá fyrirtæki til þess að veita styrk. Undirritaður vill nýta vettvang þennan til þess að hvetja þau fyrirtæki í bæjarfélaginu sem hafa tök á að styrkja við íþróttahreyfinguna, hvort sem það er mikið eða lítið því allir styrkir skipta máli. Ástæðan er einfaldlega sú að með góðu og öflugu íþróttastarfi stuðlum við saman að hollri hreyfingu og jákvæðum félagsskap og lífstíl sem hefur mikil forvarnaráhrif. Með þessum orðum skora ég á fyrirtæki bæjarins að koma að íþróttastarfinu með því að veita styrk í hvaða formi sem er, því án ykkar verður starfið ekki að veruleika.

Sjálfboðaliðar félagsins eru margir og eru þeim færðar miklar þakkir fyrir það óeigingjarna starf sem þeir gefa af sér í þágu félagsins. Fólkið sem kemur að barna- og unglingastarfinu vinnur mjög öflug og gott starf og án þeirra væri þetta ekki hægt. Hið sama má segja um fólkið sem starfar í kringum meistarflokk kvenna og karla en það er sitthvort ráðið sem þar starfar, þ.e. meistarflokksráð kvenna og meistarflokksráð karla. Þeim vil ég þakka fyrir sitt framlag til félagsins. Samandregið eiga allir sjálfboðaliðar okkar skilið mikið hrós skilið því það eru þið sem haldið þessu gangandi. Án ykkar væri ekki hægt að halda úti þessu flotta og öfluga starfi. Umgjörðin í kringum deildina er jákvætt og félagsskapurinn er virkilega góður. Ég hvet enn fleiri til að koma að starfinu okkar með einhverjum hætti og heiti því að öll sjálfboðaliðastörf eru metin af verðleikum og ekki skemmir fyrir þessi góði félagsskapur.

Að lokum þakkar undirritaður formaður félagsins öllum hlutaðeigandi fyrir skemmtilegt og gefandi samstarf og megi það halda áfram að blómstra.

Fyrir hönd stjórnar,

Sigurjón Hafþórsson

Formaður handknattleiksdeildiar Stjörnunnar

SKÝRSLA KNATTSPYRNUDEILDAR

Knattspyrnudeild Stjörnunnar

Knattspyrnudeild Stjörnunnar hefur á undanförnum árum sýnt að félagið er í fremstu röð í íslenskri knattspyrnu, bæði hvað varðar öflugt yngri flokkastarf og faglegt afrekstarf. Metnaður, framsýni og fagmennska hafa verið leiðarljós í allri uppbyggingu sem nánar er fjallað um í hér að neðan.

Í byrjun árs gaf Þorvaldur Örlygsson kost á sér til formanns KSI og bar hann þar sigur úr bítum. Þorvaldur lét því af störfum sem rekstrarstjóri knattspyrnudeildar og sinnir nú formennsku hjá öflugasta Íþróttasambandi landsins. Við þökkum Þorvaldi kærlega fyrir gott samstarf og væntum þess að áframhald verði á.

Á haustönn voru gerðar breytingar  stjórn deildarinnar en nýja stjórn skipa Sæmundur Friðjónsson, Einar Páll Tamimi, Áslaug Guðmundsdóttir, Helgi Hrannarr Jónsson og Valgeir Sigurðsson. Samhliða því voru gerðar breytingar á skipuriti deildarinnar þar sem áhersla er á að efla starfið enn frekar. Á nýju ári voru auglýstar  tvær nýjar stöður en það er verkefnastjóri knattspyrnudeildar og framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar. Hlutverk þeirra verður að tryggja áframhaldandi faglega, markvissa og metnaðarfulla vinnu í samstarfi við öflugt teymi starfsfólks, sjálfboðaliða og stjórn.

Á sama tíma og ný stjórn var skipuð létu þeir Gunnar Guðni Leifsson og Sævar Már Þórisson af stjórnarstörfum fyrir deildina en þeir hafa unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir félagið undanfarin ár. Við þökkum Gunnari og Sævari kærlega fyrir þeirra framlag og væntum þess að sjá þá í verkefnum á vegum deildarinnar á næstu misserum. 

Knattspyrnudeildin þakkar öllum stuðningsmönnum, sjálfboðaliðum, styrktaraðilum, starfsmönnum og aðalstjórn fyrir gott samstarf og væntir þess að áframhald verð á. 

Skíni Stjarnan!

Yngri flokka starf Stjörnunnar

Stjarnan heldur úti einu stærsta yngri flokka starfi landsins í knattspyrnu. Fjölgað hefur um 200 iðkendur á tveimur árum sem teljast verður flottur árangur. Þessi þróun er ánægjuleg en með fleiri iðkendur þarf aukið rými og pláss, skipulag í kringum starfið þarf að vera gott og síðast en ekki síst þarf fleira starfsfólk til að sinna umfangs meira starfi. Knattspyrnudeild heldur utan um 64 æfingar á viku og yfir 800 leiki árlega í 5.–2. flokki karla og kvenna.

Lögð er rík áhersla á menntun þjálfara en 60% aðalþjálfara deildarinnar eru með UEFA A eða í námi til að ljúka þeirri gráðu og aðrir með UEFA B. Í starfinu eru 29 þjálfarar og 39 ungir aðstoðarþjálfarar. Menntun þjálfara stuðlar að gæðum starfsins og þeir eru hvattir til að nýta sér alla fræðslu sem í boði er. Undanfarin 2 ár hefur verið framkvæmd þjónustu- og ánægjukönnun meðal foreldar og hafa niðurstöður verið í jákvæða átt. M.a. er mælt NPS skor og er vert að nefna að skorið hefur farið úr -15% í 12% á árinu 2024 sem sýnir framfarir og hvatningu til áframhaldandi umbóta.

Breytingar hafa orðið á skipulagi yngri flokka eftir að  Andri Freyr hætti í fullu starfi og sér nú um leikgreiningar og styrktaræfingar í fjarvinnu. Páll Árnason er áfram yfirþjálfari yngri flokka Stjörnunnar. Hjalti Djurhuus Kárason er áfram með yfirumsjón með minni boltanum og Arnar Páll Garðarsson er með yfirumsjón yfir eldri flokkum og innleiðingu á Tactical Periodization sem eldri flokkarnir vinna með. Hann er einnig með leikgreiningar og tvinnar það saman með TPZ. Hilmar Árni Halldórsson er yfir innleiðingu Kúltursvinnu hjá yngri flokkunum sem er gríðarlega stórt og spennandi verkefni sem við munum þróa enn frekar á komandi árum. Erin McLeod yfirgaf félagið til að klára ferilinn í Kanada og fengum við inn Arnar Darra Pétursson til að taka við markmannsþjálfun hjá yngri flokkunum. Félagið heldur áfram að bjóða iðkendum upp á gjaldfrjálsa sjúkraþjálfun sem er ótrúlega vel gert.

Stjarnan leggur áherslu á að allir iðkendur fái verkefni við sitt hæfi, að þjálfarar vinni saman og að skóla-  og foreldrasamstarf styðji við starfið. Árangur er mældur í lærdómi, ekki titlum, og unnið er markvisst að því að efla leikmenn bæði innan sem utan vallar með áherslu á virðingu, hugrekki og þrautseigju.

Meistaraflokkur kvenna

Tímabilið 2024 var mótandi ár fyrir meistaraflokk kvenna þar sem mikil endurnýjun fór fram og fjölmargar ungir, uppaldir leikmenn fengu sín fyrstu alvöru tækifæri með liðinu. Jóhannes Karl Sigursteinsson (Kalli) tók við liðinu af Kristjáni Guðmundssyni um mitt tímabil og Vignir Snær Stefánsson var honum til halds og trausts. Rajko sinnti áfram markmannsþjálfun.

Liðið komst í undanúrslit Lengjubikarsins þar sem það laut í lægra haldi gegn Val. Í Bestu deildinni var liðið grátlega nálægt því að ná í efri hlutann en síðbúið mark í tapi gegn Þrótti í lokaleik fyrir skiptingu setti strik í reikninginn. Eftir það náði liðið góðum takti og endaði í 7. Sæti, efst í neðri hlutanum, eftir jákvæða lokaspretti.

Í bikarkeppninni féll liðið úr keppni í spennandi leik gegn Breiðabliki í 8-liða úrslitum, þar sem úrslitin réðust með 3–4 tapi.

Að tímabilinu loknu tók Kalli formlega við liðinu og Arnar Páll Garðarsson gekk til liðs við þjálfarateymið eftir brotthvarf Vignis Snæs sem ákvað að færa sig um set. Arnar Páll kemur með góðan grunn úr þjálfun bæði hjá Álftanesi og yngri flokkum Stjörnunnar. Fram undan er spennandi tími hjá liðinu með áherslu á áframhaldandi uppbyggingu og mótun á þeirri kynslóð sem nú er að stíga sín fyrstu skref á efsta stigi.

Meistaraflokkur karla

Sumarið 2024 einkenndist af því að vera „næstum því“ tímabil fyrir meistaraflokk karla. Liðið endaði í 4. sæti Bestu deildarinnar og komst í undanúrslit Mjólkurbikarsins en náði ekki Evrópusæti þar sem KA tryggði sér bikarmeistaratitilinn. Liðið átti erfitt uppdráttar í byrjun móts en fann taktinn þegar leið á sumarið og sýndi tilþrif. Má því segja að lokaniðurstaðan hafi verið í meðallagi miðað við væntingar.

Áhugi á leikmönnum félagsins jókst mikið eftir glæsilegan enda sprett árið 2023, þar sem liðið tryggði sér 3. sæti og þar með þátttökurétt í Evrópukeppni. Í kjölfarið var Eggert Aron Guðmundsson seldur til Elfsborg, sala sem líklega setti met hvað varðar áhuga eftir íslenskum leikmanni á síðari árum. Áframhaldandi áhugi á leikmönnum félagsins skilaði sér einnig í sölu Helga Fróða til Hollands um mitt tímabil og Róberts Frosta til GAIS í Svíþjóð að tímabili loknu.

Í Evrópukeppninni 2024 vann liðið góðan sigur á Linfield á sögufrægum velli í Belfast en féll því miður út í næstu umferð gegn Paide Linnameeskond. Ákveðin vonbrigði að komast ekki í þriðju umferð Evrópukeppninnar. 

Ágætis árangur náðist í bikarkeppninni en liðið féll úr keppni gegn Víkingum eftir vítaspyrnukeppni í dramatískum undanúrslitaleik á Víkingsvellinum.

Að tímabilinu loknu kvöddu þrír af okkar reyndustu og mikilvægustu leikmönnum; Daníel Laxdal (leikjahæsti leikmaður félagsins), Hilmar Árni Halldórsson (markahæsti) og Þórarinn Ingi Valdimarsson. Þeir hafa allir verið burðarásar í þeirri stefnu að byggja upp ungt og uppalið lið. Kveðjan til þeirra var ekki aðeins táknræn heldur einnig einstök í íslenskri knattspyrnusögu og þó að áherslan hafi einkum verið á Daníel sem uppalinn leikmann þá var þetta þakklætisvottur til þeirra allra. Takk kærlega fyrir okkur Daníel, Hilmar og Þórarinn!

Tímabilið 2025 markar endapunkt á uppbyggingarskeiði sem unnið hefur verið að af krafti undanfarin ár. Sú sýn að byggja á ungum og uppöldum leikmönnum hefur skilað sér og nú horfum við til framtíðar af mikilli bjartsýni og trú á því að við getum haldið áfram að vaxa og blómstra, bæði sem lið og sem félag.

Skíni Stjarnan!
Knattspyrnudeild Stjörnunnar

LIÐ ÁRSINS 2024

KVENNA- OG KARLALIÐ LYFTINGADEILDAR Í OPNUM FLOKKI Í KLASSÍSKUM LYFTINGUM

Kvenna- og karlalið Stjörnunnar urðu stigahæstu liðin í hvorum flokki fyrir sig á Íslandsmótinu í klassískum kraftlyftingum í opnum flokki sem haldið var í október 2024 í Miðgarði og unnu þar með liðabikara bæði kvenna og karla.

Þetta mót er sterkasta og fjölmennasta mótið í opnum flokki í klassískum kraftlyftingum á Íslandi. Stjarnan háði harða baráttu við Breiðablik bæði í kvenna- og karlaflokki um liðabikarana. Þetta er í fyrsta skipti sem Stjarnan vinnur liðaverðlaun á Íslandsmótinu í klassískum kraftlyftingum og er það til marks um gríðarlega góða þróun og vöxt í starfi deildarinnar að vinna þessa titla. Öflugum keppendum á hæsta stigi hefur fjölgað mjög hjá deildinni og er það m.a. að þakka stórbættri aðstöðu, ráðningu fastra þjálfara við deildina og öflugu félagsstarfi. Mjög áberandi er hversu góð liðsheild hefur myndast  innan deildarinnar, mikill andi og gagnkvæmur stuðningur. Það er til fyrirmyndar svo eftir er tekið. Margir af liðsmönnum Stjörnunnar í opnum flokki í klassískum kraftlyftingum hafa unnið sér keppnisrétt á EM og HM í klassískum kraftlyftingum á næsta ári og stefnir í að stór hluti landsliðsins verði skipaður Stjörnufólki.

 - Í kvennaflokki átti Stjarnan fimm keppendur og vann liðið til þriggja Íslandsmeistaratitla og tveggja silfurverðlauna.

 -  Í karlaflokki átti Stjarnan sjö keppendur og vann liðið einn Íslandsmeistaratitil, þrenn silfurverðlaun og þrenn bronsverðlaun.

SKÝRSLA KÖRFUKNATTLEIKSDEILDAR

Stjórn

Einar Karl Birgisson, formaður

Gústaf Steingrímsson, varaformaður

Ása Geirsdóttir, meðstjórnandi

Gunnar Viðar, meðstjórnandi

Sigurður Þórðarson, meðstjórnandi

Þorsteinn Magnússon, meðstjórnandi

Barna og unglingastarf körfuknattleiksdeildar

Árið 2024 var gjöfult fyrir barna og unglingaráð körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar.

Deildin bauð uppá æfingar og tefldi fram liðum í öllum árgöngum hjá báðum kynjum. Heildarfjöldi í unglingastarfi deildarinnar eru tæplega 500 iðkendur sem er örlítil fækkun á milli ára sem stafar helst af því að þeir gríðarlegu fjölmennu strákaárgangar fæddir á árunum 2006-2011 eru að eldast og kvarnast hefur úr og fjöldi í yngri árgöngum nær ekki sama fjölda og þegar þeir voru yngri, þó fjölmennir séu.
Stjarnan er eftir sem áður fjölmennasta körfuknattleikdeild landsins.

Árangur

Barna og unglingastarf er frábrugðið meistaraflokkum að því leyti að árangur er mældur í mörgum þáttum, ekki eingöngu úrslitum leikja eða titlum en þó er vert að minnast á þá staðreynd að Stjarnan vann flesta Íslands og bikarmeistaratitla og átti sömuleiðis flesta krakka í landsliðsverkefnum síðasta sumars.

Árangur undanfarinna ára má rekja til margra þátta en þar má helst nefna tvennt, samkeppnishæfi meistaraflokkana, að þar séu fyrirmyndir að keppa til sigurs í góðri umgjörð er hvetjandi fyrir komandi kynslóðir. Ekki síður mikilvægt eru hæfir þjálfarar sem gefa sinna sínu starfi af alúð og fórnfýsi. Körfuknattleiksdeildin hefur verið heppin undanfarin ár að hafa átt nokkra einstaka þjálfara sem koma úr nærsamfélaginu. Árangur deildarinnar byggir að miklu leyti á þeirra starfi.

Ánægjukönnun

Nýverið lét barna og unglingaráð deildarinnar, leitt af nýjum formanni Heimi Erni Sveinssyni gera ánægjukönnun meðal foreldra. Gaman er að segja frá því að yfirgnæfandi jákvæð svör bárust þar sem foreldrar lýstu ánægju með æfingar, þjálfun og skipulag.

Helstu lykiltölur eru að 87% foreldra eru sammála eða mjög sammála því að samskipti þjálfara við iðkendur og foreldra séu góð.
83% foreldra gefa einkunnina 8 til 10 á um hvort þeir myndu mæla með starfi yngri flokka við aðra. 51% gefa hæstu einkunnina (10).
90% foreldra telja barnið sitt vera ánægt í starfinu.​

Foreldrum gafst tækifæri á koma með athugasemdir um það sem betur má fara, þó að könnunin hafi komið frábærlega út fyrir deildina þá fengum við á sama tíma ábendingar um það sem má bæta, eitthvað sem nýtist í vinnu framtíðarinnar.

Framtíð

Körfuknattleiksdeildin hefur sínar áskoranir, en horfir engu að síður björtum augum til framtíðar. Við búum að miklum mannauði, sem er mikilvægasti hluti hvers íþróttafélags.
Bæði í fjölda iðkenda en ekki síður þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem í anda góðra biblíusagna fórna tíma sínum deildinni til heilla, án þess að biðja um neitt í staðinn.
Deildin  kann þeim bestu þakkir fyrir þeirra framlag, starfið gengi illa upp án þeirra.

Meistaraflokkar karla og kvenna

Eftir góð uppbyggingarár í kvennakörfunni hélt sú vegferð áfram á árinu 2024. Liðið sem byggt er upp á yngri uppöldum leikmönnum sýndi styrk og komst í í efri hluta deildarinnar þegar henni var skipt upp, 4.sæti. Þar voru allir leikir krefjandi og komumst við vel frá borði. Úrslitakeppnin var spennandi og komst liði í undanúrslit, og eftir hörku seríu við Keflavík í fimm leikjum döpuðum við oddaleiknum naumlega. Liðið vakti verskuldaða athygli fyrir kröftugan leik og sannarlega skildu stelpurnar allt eftir á gólfinu.
Stelpurnar komust í 8.liða úrslit í VÍS bikarnum 2023-24

Á tímabili áttum við þrjár konur í A-landsliðshópi, þór Ísold, Kolbrúnu og Ísold.
Ísold sagði skilið við körfuboltann, vonandi tímabundið, eftir tímabilið.

Karlaliðið var í brasi á tímabilinu og enduðu þeir í 9 sæti í deildinni sem ekki gaf sæti í úrslitakeppninni sem voru gríðarleg vonbrigði. Deildin var vissulega sterki og áttum við alveg fram að lokaleik í deildinni möguleika á að komast í úrslitakeppnina, enduðu með jafn mörg stig og liðin í 7. Og 8.sæti deildarinnar.
Úrslitakeppnin er mikilvæg tekjulega séð fyrir félagið, og því er það öllum ljóst höggið sem verður við að komast ekki þangað.
Strákarnir komust í undanúrslit í VÍS bikarnum 2023-24

Í lok tímabilsins í fyrra lét Arnar Guðjónsson af störum sem þjálfari beggja meistaraflokkanna, og þakkar Stjarnan honum fyrir vel unnin störf fyrir klúbbinn á síðustu árum.
Nýir þjálfarar tóku til starfa, og var Ólafur Jónas Sigurðsson ráðin þjálfari mfl. Kvenna og honum við hlið var Karl Hannibalsson. Hjá körlunum tók Baldur Þór Ragnarsson við stjórnartaumunum og Ingi Þór Steinarsson var honum við hlið.

Lokaorð

Körfuboltinn innan Stjörnunnar stendur sterkur og áframhaldandi vöxtur og árangur eitthvað sem byggja verður á fram veginn, nú sem endranær.
Eins og nefnt var urðu töluverðar breytingar á þjálfarateymum meistaraflokkanna sem og leikmanna þeirra. Yngri leikmenn og reynslumiklir íslenskir leikmenn bera uppi flokkana, þó skugga hafi lagt undanfarin ár fjölda erlendra leikmanna í deildunum, hefur Stjarnan reynt að forðast að taka þátt í því kapphlaupi, og lagt sig fram við að huga að grasrótinni.

Viðburðaríkt ár að baki og mikil hugur fram veginn.

Fyrir hönd stjórnar, langar mig að þakka öllum þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum sem lagt hafa deildinni til tíma, vinnu og orku. Án ykkar væri þetta ekki hægt. Eins þökkum við starfsfólki Stjörnunnar og Ásgarðs fyrir gott og árangursríkt samstarf.

Einar Karl Birgisson,
Formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar.

SKÝRSLA LYFTINGADEILDAR

Árið 2024 var einstakt og gríðarlega farsælt ár hjá Lyftingadeild Stjörnunnar. Starfið hélt áfram að þróast með miklum krafti og fjöldi keppenda og árangur þeirra á sviði kraftlyftinga og ólympískra lyftinga undirstrikar það faglega og metnaðarfulla starf sem fer fram innan deildarinnar. Aðstaðan í Miðgarði hefur reynst lykilatriði í því að skapa jákvætt og faglegt umhverfi fyrir iðkendur á öllum aldri og getustigum.

Keppnisstarf og helstu afrek

- Deildin átti 7 keppendur á Reykjavík International Games.
- 4 af 9 íslenskum keppendum á Evrópumeistaramóti Evrópska Kraftlyftingasambandsins (EPF) komu úr Stjörnunni.
- Lyftingadeildin hélt stærsta mót í sögu Kraftlyftingasambands Íslands, Íslandsmót unglinga og öldunga í klassískum kraftlyftingum, þar sem 93 keppendur mættu til leiks af 101. skráðum.
- Hanna Jóna Sigurjónsdóttir keppti á Heimsmeistaramóti Alþjóðakraftlyftingasambandsins (IPF) í Vilníus, Litháen.
- Þorbjörg Matthíasdóttir vann til silfurverðlauna á Vestur-Evrópumótinu í +84 kg flokki í Valetta, Möltu.
- 4 keppendur tóku þátt í Norðurlandamóti Norræna Kraftlyftingasambandsins (NPF).
- 3 keppendur kepptu á Evrópumeistaramóti unglinga í klassískum kraftlyftingum.
- Í ólympískum lyftingum lenti Friðný Fjóla Jónsdóttir í 15. sæti á Evrópumeistaramótinu, setti 3. Íslandsmet og var sæmd Elite Pin frá Norræna Lyftingasambandinu – en aðeins 10 Íslendingar hafa hlotið þann heiður. Hún tryggði sér einnig keppnisrétt á Heimsmeistaramótinu 2025.
- Lyftingadeildin varð stigahæsta liðið í bæði karla- og kvennaflokki á Íslandsmóti í klassískum kraftlyftingum, í fyrsta skipti í sögu deildarinnar. 

Félagsstarf og þjálfun

Í lok árs 2024 voru meðlimir deildarinnar orðnir yfir 150, sem sýnir áframhaldandi vöxt og mikinn áhuga á lyftingum í Garðabæ og nágrenni. Við deildina starfa þrír metnaðarfullir og hæfir þjálfarar:

- Andri Páll Ásgeirsson, kraftlyftingaþjálfari
- Arnór Gauti Haraldsson, lyftingaþjálfari
- Hinrik Pálsson, meistaraflokksþjálfari í kraftlyftingum

Aðstaðan og faglegt þjálfarateymi skapar einstaka umgjörð fyrir iðkendur og gefur þeim verkfæri til að ná hámarksárangri – hvort sem um er að ræða byrjendur eða landsliðsfólk.

Markmið fyrir árið 2025

- Halda áfram að auka fjölda iðkenda og auka sýnileika deildarinnar innan íþróttafélagsins og Garðabæjar.
- Tryggja að keppendur deildarinnar haldi áfram að ná árangri á innlendum mótum.
- Stefnt er að því að deildin eigi fulltrúa í öllum landsliðsverkefnum, bæði í unglingaflokkum og opnum flokki.

Skíni Stjarnan!

Aron Friðrik Georgsson, formaður
Hinrik Pálsson, varaformaður
Alexander Ingi Olsen, ritari
Arna Ösp Gunnarsdóttir, meðstjórnandi
Auður Arna Eyþórsdóttir, meðstjórnandi

SKÝRSLA SUNDDEILDAR

Stjórn

Stjórn sunddeildar er skipuð eftirtöldum:

Sigrún Þorsteinsdóttir, formaður

Gunnhildur Arnoddsdóttir, ritari (fram á vor 2024)

Gunnur Ýr Gunnarsdóttir og Sandra Björk Björnsdóttir

Þjálfarar

Hannes Már Sigurðsson er yfirþjálfari sunddeildar og sér um daglegan rekstur deildarinnar ásamt stjórn. Hannes og Kristján Albert Kristinsson sáu um þjálfun A hóps, Sigþór Örn Rúnarsson, Júlía Líf Gunnsteinsdóttir, Orri Bjarnason og Ágústa Inga Arnarsdóttir voru með C, D, E og barnahópa. Aðstoðarþjálfari var Guðrún Lára Arnarsdóttir.  Júlía Líf sá einnig um sumarstarfið hjá okkur.   

Iðkendur

Iðkendur hjá deildinni árið 2024 bæði sem sóttu námskeið tímabundið, sumarnámskeið og barnanámskeið og þau börn sem æfðu sund voru í kringum 300. 90 iðkendur æfðu að staðaldri allt árið hjá okkur sem er svipað og síðasta ár, örlítil fjölgun sem um leið setur reksturinn í betra jafnvægi. Kynjahlutfall er nokkuð jafnt.

Æfingar

Æfingahópar voru 8 talsins: A hópur fyrir 13 ára og eldri , B hópur 10-13 ára, sem náðist að endurvekja um haustið, C hópur fyrir 8-11 ára, tveir D hópar fyrir 7-9 og 6-8 ára og þrír E hópar fyrir byrjendur 4-7 ára. A hópur æfir 11 sinnum í viku bæði þrekæfingar og sundæfingar B hópur 4-5 sinnum og aðrir hópar 2-3 sinnum. Við höfum sett okkur markmið að fjölga um allavega einn hóp árið 2025 og lítum við þar til Álftaness.

Markmið

Yngri börn: Að börnin læri undirstöðutækni í sundi. Lögð er áhersla á að börnin hafi gaman af, verði örugg í vatninu og líði vel. Einnig er áhersla á að byggja upp samkennd og liðsheild geta hlustað og farið eftir fyrirmælum og sýnt starfsfólki og félögum virðingu og kurteisi.

Eldri börn: Að börnin fái fjölbreytta þjálfun í keppnisgreinum sundsins. Börnin fái að spreyta sig í keppni á löggiltum sundmótum með jafnöldrum úr öðrum félögum. Einnig að þau fari sem hópur í æfinga- og keppnisferðir innan- og utanlands sem þroskar þau og eflir.

Námskeið: Að bjóða upp á alhliða líkamsrækt í gegnum sundæfingar og sundleikfimi auk þess að efla sundiðkun almennings. Sem og ungbarnasund fyrir þau allra yngstu.

Námskeið

Haldin eru reglulega námskeið fyrir þriggja til sex ára börn í fylgd með foreldrum. Námskeiðin hafa gengið mjög vel og eru orðin fastur liður í starfi sunddeildarinnar. Einnig er boðið uppá ungbarnasund sem Björg Ósk hefur umsjón með í samstarfi við sunddeildina. Einnig erum við með vatnsleikfimi og leikfimi fyrir barnshafandi konur sem Hrafnhildur Sævarsdóttir og Birna Guðmundsdóttir hafa séð um.

Sunddeildin hefur frá stofnun staðið fyrir sumarsundnámskeiðum í Ásgarði og á Álftanesi. Áhersla hefur verið fyrir börn á aldrinum 3ja til 11 ára. Sl. 7 ár höfum við sótt börn af þeim leikskólum sem eru í göngufæri við Ásgarð og Álftaneslaug hefur þetta gefið góða raun og munum við halda þessu áfram. Sundþjálfararnir Júlía, Katrín Tinna og Ágústa Inga sáu um sumarnámskeiðin auk sundmanna úr unglingastarfinu okkar.

Starfið árið 2024

Farið var á fjölmörg mót með krakkana árið 2024 og gekk það mjög vel. Upp í B hóp er kominn sterkur hópur sundmanna sem voru í C hóp og hafa haldið tryggð við félagið, allt miklir félagar og hafa æft 4-5 sinnum með þeim sem eftir eru í A hóp.   

Aðstaðan

Aðstöðuleysið er enn það sama hér í bæ, því miður. En við þurftum ekki að fella mikið niður í vetur vegna þess að tíðin var bara það góð.  Lentum einu sinni í því að þurfa fara upp úr vegna eldinga, annað var það ekki. Boðið var uppá æfingar og námskeið í öllum sundlaugum Garðabæjar; Ásgarði, Álftanesi, Mýrinni og Sjálandsskóla. Sundæfingar hjá yngra starfinu eru eingöngu í innilaugunum.

Fjármálin

Staða sunddeildar er sterk. Sunddeildin hefur lagt áherslu á að halda fjármálum deildarinnar í jafnvægi. Við viljum vera réttu megin við núllið og þetta hefur verið nokkur barningur undanfarin ár en það hafðist þetta árið með sölu á auglýsingaskiltum til dæmis og fjölgun iðkenda. En við erum svolítið bundin í báða, þ.e. að við erum með fjöldatakmarkanir í hópana því plássið er takmarkað og sökum öryggis er enginn þjálfari sem getur verið einn með mikinn fjölda.  Það tekur alltaf smá tíma að stilla af svona nokkuð því það kostar alveg jafnmikið að þjálfa 10 eins og 5. En 8-10 í hóp er svona fullkomin fjöldi í hvern hóp í yngri hópunum en geta verið fleiri þegar þau eru orðin eldri.

Framtíðin

Mikilvægt er að halda áfram uppbyggingu sundmannvirkja til að hægt verði að mæta þörfum ólíkra hópa og stækkandi bæjarfélagi til framtíðar og er það enn ósk okkar að einhvern daginn eigum við 25m/50m innisundlaug sambærilega og nágrannabæjarfélög okkar eiga. Eins og í öllu félagsstarfi þá er stuðningur sjálfboðaliða ómetanlegur og starfið væri lítið sem ekkert ef ekki væri fyrir sjálfboðaliða. Fyrst og fremst vonum við að við höldum áfram að byggja upp jákvæða og heilbrigða einstaklinga sem Stjarnan getur verið stolt af. Að lokum þakkar stjórn sunddeildarinnar öllum þeim sem komu að starfinu með einum eða öðrum hætti og starfsfólk mannvirkjanna á heiður skilið fyrir þolinmæði í garð iðkenda.

Skíni Stjarnan!

F.h. sunddeildar Stjörnunnar

Sigrún Þorsteinsdóttir, formaður

STJÖRNUKONUR

ÖFLUGT KVENNASTARF Í SINNI BESTU MYND

Frá stofnun Stjörnukvenna 2019 hefur aukist jafn og þétt í hópnum með viðburðum sem skipulagðir hafa verið. Árið 2024 var engin undantekning en Stjörnukonur voru með frábært fræðslukvöld um samskipti foreldra og barna. Lögð var áhersla á að huga almennt að samskiptum, t.d. sem foreldri barna í íþróttum þar sem margt getur komið upp. Árleg Stjörnukvennaganga heppnaðist ákaflega vel og alltaf bætast fleiri konur í hópinn sem hafa áhuga á starfinu. Stjörnukonur halda ótrauðar áfram að finna leiðir í frekari fjáröflun og rennur ágóði hennar beint í sjóð Stjörnukvenna.

Tilgangur Stjörnukvenna er margþættur. Meginmarkmiðið er að styrkja og efla barna- og unglingastarf og vera góðgerðarfélag sem styrkir góð og verðug málefni. Þau verkefni sem Stjörnukonur hafa styrkt eru t.a.m. peningastyrkir til iðkenda sem hafa þurft aðstoð vegna ferða erlendis, peningastyrkir til fjölskyldna Stjörnufjölskyldunnar sem hafa verið að glíma við erfiðleika og eins hefur verið leitað til Stjörnukvenna til að fá styrk við fræðslu hjá ákveðnum flokkum sem þarf að efla. Allt er þetta hluti góðgerðarstarfsins sem félagsskapurinn vill halda í heiðri.

Hægt er að fylgjast með okkur á Facebook og Instagram undir Stjörnukonur. Eins er hægt að senda okkur fyrirspurnir á stjornukonur@stjarnan.is.

F.h. Stjörnukvenna,

Harpa Rós Gísladóttir